Nei hvað er að sjá
18.12.2007 14:10:04 / birna

Prófin búin

Já loksins, loksins eru prófin búin. Ég kláraði síðasta prófið mitt í dag. það var próf í málfræði og ekkert smá langt próf! Kennarinn minn var greinilega á flippinu þegar hann bjó það til.

Ég fór vestur í vondaveðrinu um síðustu helgi. Ég fór með mömmu,pabba, Óla og Svövu út að borða á Hraunsnef á laugardeginum, ummm nammmmi gott. Við átum á okkur gat og ultum eiginlega út. Svo fór ég í kveðjupartý til Jennyjar, þau eru að fara út. Gaman að hitta þau aftur.

Annars er voðalega lítið að frétta hér hjá mér. Fer í jólafrí á föstudaginn, get ekki beðið að komast heim, hitta fjölskylduna og borða góðan mat, ja kannski bara mat yfir höfuð, því ég elda ekki fyrir mig eina. Finnst ömurlegt að elda fyrir mig og borða ein.

ok nóg um þetta, eigiði góða viku fyrir jól. :D

Birny


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 23:25:46 / birna

autumn almanac

Allt í lagi, allt í lagi. Ég skal blogga fyrir ykkur!

Í dag mun vera miðvikudagurinn 5. desember. Það þýðir að það styttist óðum í afmælið mitt:D Það verður reyndar ekki mikið gert því sumir eru að vinna og aðrir í prófum. Svona er að eiga afmæli í desember.

Ég er, eins og margir aðrir, farin að huga að jólunum og þá aðalega jólakortunum. Er að herða mig upp í það að skrifa þau og koma þeim í póst. Búin að kaupa þau, já ég ætla að vera löt í ár og sleppa því að föndra. Hef ekki aðstöðu til þess að föndra. Svo þarf maður að fynna jólagjafir handa þeim sem fá gjafir. Það er oftast hausverkur. Mamma ætlar að koma suður á mánudaginn og við ætlum að klára þetta þá. Erum svo eldsnöggar að þessu. Kviss bamm búmm og það er búið, hehe.  

Annars hefur ekkert merkilegt gerst hérna hjá mér. Held reyndar að Atli og Marta séu komin með ógeð af mér. Mér líður nefnilega eins og munaðarleysingja, það á ekki við mig að búa ein. Óttalega getur mér leiðst mikið. Þannig að Marta fær að finna fyrir því hehe. Ég veit ekkert verra en að hanga ein með sjálfri mér. Held að þetta eigi rætur að rekja til þess að þegar ég var að alast upp var ég aldrei ein. Ja ekki ein í þeim skilningi að ég var ein í húsinu. En maður getur verið einmana og samt umkringdur fólki, eins og kom stundum fyrir hjá mér. Þannig er það hérna í Reykjavík, fullt af fólki en samt getur manni leiðst og verið einmana. Ég held að tilfinningin verði alltaf verri eftir því sem fólkinu umhverfis mann fjölgar. Mér líður til dæmis ágætlega þegar ég er ein út í sveit, því ég veit að það eru svo fáir í kringum mig. Ok, núna eruð þið að hugsa, hvurn and...er hún að fara! Ekki það að Reykjavíkur lífið sé alslæmt. Og stór plús eru náttúrulega vinirnir...sem ég er engan vegin nógu dugleg að hafa samband við :S

Núna eru prófin mín byrjuð og byrjaði ég í gær á munnleguprófi. Held að það hafi bara gengið ágætlega, ja ég vona það í það minnsta. Maður veit samt aldrei. Svo þriðjudaginn 11 er bókmenntapróf, úff maður, það er pain! Þeir sem hafa upplifað ísl 403 og 503 í ármúlanum, eða sambæranlega áfanga í öðrum skólum, ættu að vita um hvað málið snýst. Ljóð, smásögur og annað sem flokkast undir bókmenntir, en stóri mínusinn er að þetta er á óskiljanlegu máli líka!!!!! Er alls ekki spennandi fag. En eins og mamma sagði alltaf: “maður getur ekki bara gert það sem manni þykir skemmtilegt, maður verður líka að gera þetta leiðinlega” og það á svo sannarlega við hérna. Já eins og máltækið segir: “illu er best af lokið”.

Í dag var síðasti magadanstíminn þetta árið. Ég veit reyndar ekki hvort maður haldi áfram, mér finnst ég ekki nærri því eins góð og allar hinar í tímanum. Styrð og taktlaus hehe. En þetta hefur verið mjög gaman og mæli svo sannarlega með þessu fyrir bæði konur og karla.

Svona rétt í endann, hér er texta brot frá snillingunum í Kinks...svona smá haustfýlingur í þessu öllu saman.

Birny 

Autumn almanac  

From the dew-soaked hedge creeps a crawly caterpillar,
When the dawn begins to crack.
It's all part of my autumn almanac.
Breeze blows leaves of a musty coloured yellow,
So I sweep them in my sack.
Yes, yes, yes, it's my autumn almanac.

Friday evenings, people get together,
Hiding from the weather.
Tea and toasted, buttered currant buns
Can't compensate for lack of sun,
Because the summer's all gone.

La-la-la-la...
Oh, my poor rheumatic back
Yes, yes, yes, it's my autumn almanac.
La-la-la-la...
Oh, my autumn almanac
Yes, yes, yes, it's my autumn almanac.

I like my football on a saturday,
Roast beef on sundays, all right.

[Autumn Almanac lyrics on http://www.metrolyrics.com]
I go to blackpool for my holidays,
Sit in the open sunlight.

This is my street, and I'm never gonna to leave it,
And I'm always gonna to stay here
If I live to be ninety-nine,
'cause all the people I meet
Seem to come from my street
And I can't get away,
Because it's calling me, (come on home)
Hear it calling me, (come on home)

La-la-la-la...
Oh, my autumn armagnac
Yes, yes, yes, it's my autumn almanac.
La-la-la-la...
Oh, my autumn almanac
Yes, yes, yes, yes, yes, yes, yes, yes.

Bop-bop-bopm-bop-bop, whoa!
Bop-bop-bopm-bop-bop, whoa!


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 19:31:54 / birna

Skyndiákvarðanir og bændablaðið!

Já það er víst kominn miðvikudagur og þýðir það að bráðum kemur helgin. Við Edda Lóa ætlum á ball í Árbliki með einhverri hljómsveit sem ég veit alls ekkert um! Verður áhugavert.          

Síðasta helgi var góð. Fór í afmæli til Guðrúnar og hitti þar heilann helling af Lífefnafræðinemum(er það ekki annars Guðrún?). Við fórum þrjár saman, Alda, Marta og ég. Svo var laugardagurinn bara dunddagur.                                                                                                                             

Ég er í verkefnaviku núna, það þýðir að það er enginn skóli hjá mér en ég á að gera einhver verkefni sem eiga að skilast í næstu viku. Stuð, stuð og sérstaklega þar sem ég er eiginlega ekki byrjuð :S  

Í gær tók ég þá skyndiákvörðun að bruna upp í Borgarnes og kíkti ég á nýjustu gæludýrin hennar Eddu Lóu...já þetta er nú að verða algjör dýragarður. Hún er komin í samkeppni við Húsdýragarðinn. Já og þeir sem hafa flett bændablaðinu góða munu hafa séð mynd af mér og Sibbu. Já ég er bara orðin “fræg” hehehe. En það var svolítið skondið í vinnunni í dag. Ein konan les greinilega bændablaðið því hún fór að spyrja mig út í þessa mynd hehe. Sumir Reykvíkingar lesa greinilega bændablaðið sem er nú bara gott og blessað.                         

Ég fór á fyrirlestur hjá Claudio Magris í Norrænahúsinu á mánudaginn. Þeir sem ekki vita hver Claudio Magris er, þá er hann ítalskur rithöfundur sem var tilnefndur til Nóbelsverðlaunanna í ár. Þetta var áhugavert en einum of erfitt að hlusta á karlinn tala ensku, hefði verið miklu betra að hlusta á hann tala ítölsku og hélt ég því ekki alveg athyglinni allan tímann. Sem betur fer var þetta ekki lengra en klukkutími. Mér fannst ég voðalega menningarleg sitjandi þarna ásamt frægum íslenskum rithöfundum og frú Vigdísi Finnbogadóttur. Já maður er orðinn menningarlegur hérna í reykjavíkinni...nei annars var ég eiginlega skilduð til að mæta, kennarinn okkar stóð á bak við þetta allt saman og vorum við þar með skildug til að mæta :S Annars er ekkert að frétta héðan, allt voðalega rólegt.

Endilega kvittið fyrir komunni, jafnvel þó þið lesið þetta ekki! En kvitta kvitta kvitta...annars er ég reyndar farin að halda að einu manneskjurnar sem þvælast hingað inn séu þær Skapti og Skafti hehe og jú Marta af og til.

Skipti,

Birny


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 13:57:46 / birna

Birnur Þórðardætur

Æ þetta er örugglega í þúsundasta skiptið sem ég byrja á því að skrifa eitthvað! Einhverja hluta vegna kemur upp þessi blessaða ritstífla sem svo margir þjást af. Ekki það að ekkert hafi gerst í lífi mínu frá því einhverntíman í síðasta mánuði. Þetta haust hefur verið ansi viðburðaríkt og skemmtilegt.

Upp komandi helgi verður sú fyrsta síðan fyrstu helgina í september sem ég mun eyða í reykjavík. Já haldið þið að það sé klikkun hjá mér, ég hef farið vestur allar helgar í meira en mánuð! Reyndar fór ég aldrei lengra en í Búðardal síðustu helgi.

Fór fyrst til Eddu Lóu frænku í Borgarnesi og við elduðum að venju og fórum svo til vina hennar Helenu og Freys. Þar var kátt á hjalla og vín og bjór við hönd. Já við skulu segja að það er skrautlegt að spila uno og trivial við drukkið fólk hehe. Helena gaf okkur tyrkneskt te að drekka, rosalega var það gott. Hikstar og tyggjófingur var meðal þess sem kom fyrir. Við Edda Lóa skriðum svo heim eitthvað á milli 3 og 4.

Imbinn var svo okkar besti vinur framan af laugardeginum. Fórum svo í Búðardal í innflutningspartý hjá Hirti. Hann var að kaupa sér hús í Búðardal. Við vorum þar eitthvað um 8 og það var aðeins einn mættur á undan okkur, hann Jón Ingi. Hjörtur var rosalega heimilislegur, var búinn að setja kerti út um allt og fínerí. Rosalega var fínt hjá honum. Svo fór fólk að tínast inn. Þetta fór allt með rólegheitum fram. Baldur Þórir frændi kom þarna líka í smá stund. Hann var sjálfur að flytja inn í sitt hús. Ég kíki við hjá honum seinna, hann bauð mér að fara yfir og skoða en ég nennti ekki hehe, ofsa löt!Á sunnudeginum þrifum við fiskabúrið hjá gæluhumrinum hennar Eddu Lóu, úff hvað hann er skrítið gæludýr. Rosalega flottur á litinn en það er líka það eina sem er flott við hann. Hann á svo líka heilann helling af börnum sem svamla þarna um og það var aðeins eitt dauðsfall við þessa hreinsun á búrinu. Búrið var orðið svo ógeðslega skítugt að það var svona ýldufýla af vatninu. Hún á fullt af fiskum, heilan helling af humrum og svo er hún með eina kanínu í pössun. Mér fannst ég komin í hálf gerðan dýragarð þegar ég sá þetta allt saman. Já þetta var sem sagt síðast helgi í hnotskurn.

Í gær kláraðist magadansnámskeiðið okkar Mörtu en örvæntið ekki! Við erum búnar að skrá okkur í framhaldsnámskeið hehe. Og viti menn, hún nafna mín hún Birna Þórðardóttir er að æfa þarna líka! Ég er farin að halda að hún sitji um fyrir mér. Var ég kannski ekki búin að segja ykkur frá hinni frægu nöfnu sem ég á. Já fræg mótmælendakona og pungsparkari, Birna Þórðardóttir.

Marta var að skoða nemendaskrá hjá HÍ og sagði mér að við værum þarna tvær í minni skor sem heitum því sama. Ok ég var ekkert að kippa mér upp við það en nokkrum dögum síðar þá byrtist þessi blessaða nafna mín í tímanum mínum! Já við erum saman í tíma hehehe ég og rauðsokkan. Og þar sem ekki er hægt að aðgreina okkur með því að nota Þórðardóttir, erum við Birna 1 og Birna 2. Ég er Birna 1 ;)

Þetta er búið að vera fjölskyldu brandari frá því að ég man eftir mér. Og alltaf þegar ég er spurð að nafni, spyr fólk hvort ég sé eitthvað skild þessari fyrrnefndu Birnu. Nei ég og hún erum ekkert skildar! En það kannski fylgir nafninu að vera skrítinn. Við skulu bara enda þetta hérna. Veit að það hafa verið skrifaðar skemmtilegri færslur en fannst tími til kominn að reyna að bulla eitthvaðBirny yfir og út

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 21:02:45 / birna

Leitir, réttir, ball og kvef...

 Já síðasta helgi var viðburðarrík. Það var engin vinna hjá mér á föstudaginn því það var starfsdagur í leikskólanum. Þannig við Baldur fórum snemma úr Reykjavík og vorum komin heim um 3 leitið. Við héldum svo út á Fellsströnd í Tungurétt en þegar þangað var komið var hún búin. En við stoppuðum í smá stund og kjöftuðum við fólkið. Svo var haldið heim og það er óhætt að segja að það hafi verið kátt á hjalla. Fór allt of seint að sofa :S Mamma vakti liðið klukkan 5:30, ja þá var maður varla sofnaður. Ég klæddi mig í hlí föt því það var ansi kalt úti. Svo var liði drifið út í fjárhús og hrossin beisluð. Við vorum komin upp að Manheimatindum um sjöleitið. Fjandi var kalt! Svo þegar við vorum u.þ.b. hálfnuð upp á fjall misstum við hestana okkar. Já ansi klaufalegt. Við áðum og biðum eftir þeim sem komu frá Klifmýri og höfðum sleppt hrossunum okkar. Þeir voru bara á beit. En einn hesturinn varð svo svakalega hræddur við tauminn sinn að hann hljóp af stað og fældi hin hrossin. Það sem bjargaði því að við náðum þeim aftur var að Dagný frænka hélt enn í sinn og pabbi stökk á bak og þeysti á eftir hinum. Þeir náðust á endanum, mis slasaðir en allir í nokkuð góðu standi. Aladín greyið fór verst útúr þessu öllu saman. Hann varð stokk bólginn í vörinni og meiddi sig einnig í tunguna. En þegar hestarnir og restin af smölunum voru búinir að skila sér var ferðinni haldið áfram. Og til að gera langa sögu stutta fór ég enn einu sinni niður Villingadal. Ég og Baldur fórum niður Villingadal með pabba. Allt gekk vel og vorum við komin niður á skikkanlegum tíma eða um 4:30. Það var reyndar fátt fé sem kom af fjalli og þegar réttað var, var ekki nema hálfur almenningurinn notaður. Sem var svo sem ágætt. Ég var reyndar frekar löt að draga í réttinni en það var nóg af fólki til að draga. Bjarnþór frændi skaut upp kollinum sem var rosa gaman :D  Ágústa kom í heimsókn og var ég að sjá manninn hennar í fyrsta skiptið. Ég, Baldur og Edda Lóa fórum á réttarball. Það var stuð, ég dansaði að vísu minna en venjulega enda var ég orðin ansi þreytt. Baldur Þórir frændi var þarna hehe hann er nú meiri kallinn. Baldur bróðir dó út í bíl en hann náði að koma sér sjálfur inn þegar við komum heim. En eitt græddi ég á þessari helgi...KVEF og það ekkert smá kvef. Ég hef ekkert gert í tvo daga núna og verð að sjá til hvort ég treysti mér í eitthvað á morgun.Já þetta er nú það helsta. C ya’ later,Birny

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 11:36:58 / birna

handan við hornið!

Þetta verður síðasta færslan þetta sumarið, þar sem haustið er handan við hornið. Nú eru ekki nema nokkrar glasstundir eftir af síðasta vinnudegi mínum hérna á hjaraveraldar.

 Í gær fórum við Sibba í Breiðavík til að heilsa upp á nöfnu og Keran. Fórum eftir kvöldmat og vorum komnar í Breiðavík á skotstund, enda ekki langt að fara. Það er alltaf gaman að koma til þeirra, bæði svo hress og skemmtileg. Og staðurinn hefur ekki átt skilið alla þessa leiðindar umræðu í vor og sumar. Enda hefur staðurinn í sjálfusér ekki gert neinum mein, það er fólkið sem þar hefur áður búið. Ég held að það sé ekki til sú þúfa hér á landi sem ekki eitthvað misjafnt hefur gerst á. Vinsæll ferðastaður eins og Þingvellir...já hvað voru margir drepnir þar? Sundlaugar sem fólk syndir í, hvað hafa margir druknað þar? Og þessi fínu hótel sem voru búin til úr heimavistarskólum. Það er ekki hægt að segja mér það að þar hafi allir lifað í sátt og samlyndi alla tíð! Heimurinn er bara ekki svona einfaldur. Maður þekkir það nú af eigin reynslu. En ekki er hægt að kenna þessum stöðum um, það er fólkið sem þar hefur dvalið sem á sökina.  Já það má með sanni segja að FÓLK ER FÍFL!Þegar við komum heim um hálf 11 þá þurfti ég að pakka niður. Það var gert á mettíma. Ég pakkaði niður öllu dótinu mínu, sópaði og þurkaði af á 30 mín. Hehe snögg að þessu, enda leiðinlegt starf að pakka niður. Manneskja sem bjó á heimavist og gerði lítið annað en að pakka niður og taka upp úr töskum, getur ekki fundist það skemmtilegt. Ja svona...ég henti töskunni minni alltaf inn í skáp og þar var hún. Ef ég þurfti á einhverju að halda fór ég beint í töskuna. Finnst svo leiðinlegt að vera alltaf að taka upp og pakka niður!Þegar glasstundarmælirinn slær 6 fer ég mína síðust ferð héðan úr Örlygshöfninni þetta árið. Fólk er alltaf að spyrja mig hvort ég komi ekki aftur að ári. Ég plana ekki svona langt fram í tíman, come on! Margt getur gerst á ári. Það er alla vegana eitt sem ég og bifreiðin mín eigum ekki eftir að sakna héðan, það eru vegirnir. Hell...djö...and...böl...vegir! Þeir eru nú með því verra sem gerist hérna á Íslandi. En að vísu hafa þeir verið extra leiðinlegir þetta sumarið. Enda þurrt sumar og holurnar eftir því og einnig heilu björgin sem standa upp úr. En það er nú svo sem það eina sem ég hef undan að kvarta. Allt annað er búið að vera mjög skemmtilegt. Jæja ætla að hætta þessu bulli og ég sé ykkur, flest vonandi, á næstu dögum :D Birny

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 11:40:38 / birna

Svona rétt áður en ég fer að skúra, skrúbba og bóna!

Jæja gott fólk.

Þá fer þetta allt að styttast hjá mér! Ekki nema 2 dagar og 6 glasstundir eftir. Það hefur komið upp sú hugmynd um að fara niður í bæ á laugardaginn og hella mig fulla. Ég veit ekki með fylleríið en ég er opin fyrir því að fara niður í bæ, ja ef þið passið að ég verð ekki barin í klessu! Skilst á fréttunum að það sé orðið lífshættulegt að þvælast niður í bæ um helgar.

Það hefur svo sem ekkert merkilegt gerst hérna hjá mér. Þvottavélin reyndar neitar að opna sig. Hún er eitthvað tilfinningalega heft þessa daga blessunin. Ætti kannski að taka mig til og ræða málin við hana og reyna að komast að því hvað er að plaga hana! Hún bara hreinlega neitar að opna sig og skila tuskunum sem hún var búin að þvo. Þannig að á meðan á þessari fýlu í henni stendur verðum við að fara til nágrannanna að þvo þvottinn okkar. Ja maður hefur svo sem lent í svoleiðis áður.

Hér rignir og rignir. Safnið míglekur og gerir maður lítið annað en að hlaupa fram og til baka með fullar fötur af vatni. Gestum safnsins hefur snarlega fækkað og voru það ekki nema sex erlendar hræður sem komu við hérna í gær. Ja reyndar fór enginn inn í safnið en þau fengu sér kaffisopa. Þannig að það var frekar dauður dagur í gær. Var reyndar ansi fegin því ég var með þennan hell...hausverk í allan gærdag. Svaf eitthvað illa nóttina áður. En hausverkurinn er horfinn og allt annað að sitja hérna í dag. Ætla meira að segja að vera svo dugleg að fara taka til. Svona svo ég hafi eitthvað að gera í dag.

Nú er ég farin að bíða eftir haustverkunum. Leitir og réttir verða á Skarðsströndinni þann 15. september...úps þar fór rafmagnið af hjá okkur! Hvað ætli sé að? Best að athuga það. Jæja það komið á hreint, eitthvað að hjá þeim í Orkubúinu. Það er svo gott að geta hlaupið inn á safn að sækja safngripi sem virka og geta hringt. Þar sem það er ekki hægt að hringja úr þráðlausum símum því þeir eru tengdir í rafmagn. En þessu gömlu skífusímar virka fínt :D Jæja nú má rafmagnið fara að koma aftur....Halló! Nei ekkert. 10 mín síðar: Jeiiii það er komið :D Já ég var víst að tala um haustverkin. Eins og fram hefur komið eru réttir hjá mér 15. sept. Það er alltaf skemmtilegur tími, þegar kindurnar og lömbin koma heim. Og þær lykta svo vel, svona hreinar hehe. Kannski maður asnist á réttarball, ef það verður eitthvað! Þetta kemur allt í ljós :D

Biða að heilsa ykkur núna, ég ætla að fara að taka til. STUÐ!

Birna


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 13:31:44 / birna

Nýr dagur

Góðan dag allir saman,

 ætli það sé nú ekki best að reyna bæta ráð sitt og vera dálítið dugleg að skrifa hér inn. Já núna er hafin síðasta vikan mín hérna á hjaraveraldar. Ég hætti á föstudaginn, þá er ég farin heim. Ja fyrst að geirmundarstöðum og svo suður daginn eftir. Hvað á að gera????? en alla vegana. ég fór til Eddu Lóu frænku á laugardaginn, ja það var reyndar ekki ákveðið nema á laugardeginum....Alda hefði ég vita að það væri svona lítið að gera hefði ég farið í veiðiferð með ykkur! Og nei ég mundi eftir afmælinu þínu...þú varst bara aldrei í sambandi þannig að ég náði ekkert í þig! Hringi í þig í kvöld kella!

Það var stuð hjá Eddu Lóu frænku, var svona stelpupartý má eiginlega segja. Því það var bara kvennfólk þarna. Já enn og aftur, þetta er að verða eitthvað grunsamlegt með mig hérna. Umgengst bara kvennfólk alla daga! Ok áfram með smjörið. Hitti þarna slatta af kvennfólki sem ég hafði aldrei séð á ævinni. Allt alveg ágætis stúlkur. Skemmti mér allavegan vel. Svo var farið á barinn í Borgarnesi, ekki spyrja um nafnið á honum því ég hreinlega man það ekki, en man að það var eitthvað kjánalegt. Svo eins og frænkur eiga til þá var mikið spjallað. Já þar sem ég ákvað bara nokkrum klukkutímum áður en að afmælisveilsan byrjaði að ég ætlaði að fara, gat ég ekki farið að mæta tómhent. En þar sem það eru engar verslanir á hjaraveraldar þá gat ég ekki keypt neitt handa "aðal"frænku ;). Þannig mér datt það snjallræði í hug að týna ber handa berjasvangri frænku. Þegar ég var komin framhjá Flókalundi ákvað ég að fara að líta upp í hlíðarnar til að vita hvort ég sæi ekki einhverja fallega berjabrekku. Sá ein að ég hélt. Hljóp upp í mínum fjallaskóm(ath. ecco inniskór). en græddi þar ekkert nema blautar tásur, því þarna voru engin aðalbláber að finna. Bara þessi venjulegu sem er náttúrleg ekki nógu góð fyrir "aðal"frænku.Vot hélt ég för minn áfram og eins og Klifmýringar eiga til, glápti ég 90% fyrir utan veginn. en það sem skildi mig að frá hinum Klifmýringunum er það að ég var nú ekki að glápa á sauðfé(því mér þykir sauðfé á þessum slóðum ekki fagurt, það vantar á það stýrið!) heldur á berjalyng. Snar hemlaði því þegar ég kom inn í Kjálkafjörð sá ég iðagræna brekku fulla af aðalbláberjalyngi. Tók ég kassann minn góða(undan Nóarúsinum hehe) og hljóp eina ferðina enn upp í fjall. Hafði sem betur fer meira upp úr krafsinu í þessari ferð minni en bara blautar tær, enda hafði skóbúnaðurinn ekki skánað. Þarna voru hlussuber og náði ég að fylla rúsinukassann á met tíma! Berjablá og sælleg snéri ég rassinum uppí fallega útsýnið, enda sást yfir á hina æifögru Skarðsstönd, handan við fjörðinn. En ég var í mission...týna ber, týna ber...en alls ekki ber, var í fötum, hvað haldið þið að ég sé? Svo þegar kassinn góði var orðinn fullur hélt ég niður í mína ágætu sjálfrennireið og hélt för minni áfram. Hélt að vísu að bifreiðin myndi ekki lifa þetta ferðalag af. en hún gerði það blessunin. Já ég kom seint en ekki síðust í partý til frænku. Óhætt að segja að frænka var kát með berin sín og það var fyrir öllu.

Ég var svo hjá Eddu Lóu í gær og mikið var spjallað og kátt á hjalla. Við elduðum...ég er enn södd eftir það, rosa góður matur hjá okkur frænkunum :D Kom svo ekki hingað vestur á hjaraveraldar fyrr en um 2 í nótt. Fór hægt yfir og naut útsýnisins...tunglsljós, stjörnur og já ekki má gleyma norðurljósunum ;) Þannig ágætis dagsfrí...Jú ég kom við í búðardal hjá Hirti til að ná í peysuna mína sem hann stal af mér! hehe, takk fyrir geymsluna Hjörtur. ps. þeir sem ekki skilja "aðal" þá kalla ég frænku mína alltaf Lady eða Lafði Eddu!

Hætt þessu bulli í bili,

Birna yfir og út


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 15:38:23 / birna

Gott sumar!

Já ég hef verið kosin lélegasti bloggari ever...og samsinni því alveg. Hef enga afsökun aðra en þá að ég er hrikalega löt!Kannski er hægt að bæta pínu fyrir það með því að bulla lítið eitt og bæta því inn í safnið. Fyrir þá sem kannski ekki vita þá hef ég verið, eins og vinir mínir  og mamma orða það, á hjaraveraldar. Ég vil reyndar leiðrétta þann miskilning. Þetta er hinn fínasti staður og mæli ég eindregið með því að fólk komi og kíki við ;) Já þessi svokallaði hjariveraldar er safnið að Hnjóti í Örlygshöfn. Og hér hef ég verið að vinna í allt sumar og líkað bara nokkuð vel. Hef kynnst helling af skemmtilegu fólki og séð margt nýtt og sniðugt. Hef elt fugla inn á safni og grýtt kleinum í kúnna. Einning hef ég lent í mörgum mannýgum fuglum og leitað að Gísla á Uppsölum. Farið í ferðalag, á böll, kvennareið, danska daga og bátsferð...allt alveg skínandi góðar reynslur. Sumarið mitt hefur verið eitt það besta sem ég hef upplifað.  Sólin hefur verið að stríða mér lítið eitt í allt sumar, þar sem það eru endalausir gluggar á safninu þá hefur hún náð að hita ansi mikið upp og steikt mig all hressilega. Svo hef ég líka fengið að spreita mig á ítölsku fyrir allan þann fjölda ítala sem hingað hefur komið. Þeir eru farnir að hlaupa á tugum og er bara gaman af því. Íslendingarnir eru misvitrir og miskurteisir. Víkingar hafa komið í heimsókn og drundi í þá í öllu hér inni. Já ég gæti haldið svona endalaust áfram.En við skulum kannski ræða það nýjasta nýja. Ég hef tekið á móti þremur sænskum vinkonum í sumar og var það mjög skemmtilegt. Það nýjasta var að Malin og Anna komu í heimsókn til okkar. Ég brunaði suður í dali til að hitta ungu stúlkurnar. Hitti þær á laugardeginum. Við fórum í göngutúr í risaplássinu Búðardal og sáum þar skútu sem var strand. Strandskipið Henríetta eins og Toni orðaði það hehe. Við kíktum í kaffi til Tona og Gróu. Fórum svo í grillveislu hjá MS-Búðardal. Og svo lág leiðin góða til Stykkishólms á danska daga. Ég hitti þar tvær skemmtilegar frænkur...Eddu og Eddu...þetta er eins og Skapti og Skafti hehe.  Þegar komið var í Stykkishólm upp hófst leitin mikla að bílastæði. Hjörtur sagði mér að keyra bara áfram og eins og hlíðin stelpa gerði ég það. Við fundum þarna alveg kjörið bílastæði nánast því niður við bryggju. Flott stæði við heitapotta sem tveir herramenn böðuðu sig í. Lögðum bílnum þarna hjá hinum tveimur bílunum og gengum niður á bryggju. Hittum þar margt skrautlegt fólk og skemmtum okkur ágætlega. Ég og Hjörtur týndum reyndar sænsku ferðafélugunum okkar og leituðum og leituðum, fundum alla aðra nema þær. Hjörtur var orðinn ansi skrautlegur og hellv...skemmtilegur, enda langt kominn með flöskuna sína. Eftir flugeldasýninguna fundum við loksins stúlkurnar og þá var haldið á dansleik. Okkur til mikillar skelfingar sáum við að eitt af dansgólfunum í plássinu var okkar fína bílastæði!!! Undirrituð var orðin ansi hrædd um bílinn sinn og tókum við því upp á því að reyna að færa sjálfrennireiðina góðu. Malin stóð fyrir aftan að beina fólki frá farartækinu. Ég lág í hláturkrampa við stýrið og skammaðist mín ansi mikið. En okkur tókst að færa okkur og fundum annað enn betra stæði. Ég hafði reyndar áhyggjur af því að mönnum sem væri mál að pissa sæju þennan skítuga bíl og þætti því upplagt að reyna að þrífa hann! En það slapp allt saman. Hjörtur og ég týndum reyndar svenskunum aftur! Veit ekki alveg hvers vegna við vorum alltaf að týna þeim. Fórum í bakaríið og kynntumst þar konu sem stóð með okkur í klósett röðinni! Henni fannst Hjörtur ansi flottur í lopapeysunni sinni með bindi. Ég var pínu hrædd við þessa konu! Svo héldum við áfram að fíflast og haga okkur eins og asnar og ætla ég ekki að skrifa þær sögur hér...segi ykkur þær kannski seinna, í góðu tómi. Svo á sunnudeginum var farið í bátsferð og bættist einn í hópinn. Hann Vilhjálmur(Villi) fór með okkur. Voru fjórmenningarnir því orðnir fimm. Það var siglt út frá Stað, fyrir þá sem ekki vita þá er það ekki svo langt frá Reykhólum. Við vorum tíu ferðalangar til að byrja með. Það var farið í land í Skáleyjum og okkur var sýnt ýmislegt skemmtilegt þar. Fyrsta elliheimili Íslands og annað fleira skemmtilegt. Svo eftir dágott stopp í Skáleyjum var haldið til Flateyjar. Þar fengu svangir ferðalangar súpu og brauð. Rölt var um eyjuna og kirkjan og elsta bókasafn landsins skoðað. Ferðin endaði svo aftur við bryggjuna á Stað. Komum við að skoða þörungaverksmiðjuna á Reykhólum. Eggert var að vinna og spjölluðum við við hann :D hann er alltaf svo skemmtilegur. Svo fórum við heim til Villa í kvöldmat (kl.10 að kvöldi). Mamma hans og pabbi höfðu steikt handa okkur læri. Æðislega gott, namm namm. Komum svo ekki heim fyrr en um 1. Og þá uppgötvaðist að Hjörtur hafi rænt af mér lopapeysunni minni. Ég fór ekki að sofa fyrr en á öðrum tíma og vaknaði klukkan 5:30 til að ná að komast í vinnuna, á hjaraveraldar, kl.10.  Þetta er svona í stórum dráttum hvað gerst hefur hjá mér síðustu daga.Nóg komið í bili, orðið nógu langt til að nokkur maður nenni að lesa þetta. Birna yfir og út

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 12:58:30 / birna

Koma svo Edda Lóa!

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku saman?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera saman?

27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 15:48:38 / birna

Uppfært!

Jæja ætli ég ætti ekki að skrifa eitthvað sniðugt hér inn, rétt til að láta vita að ég sé enn á lífi...það er að segja fyrir þá sem ég heyri svo sjaldan í!

 

 



Lífið gengur sinn vana gang. Í haust byrjaði ég í ítölskunámi upp í HÍ og líkar bara vel. Náið öllum prófunum mínum og bara glöð með það. Jólin komu og fóru, nýtt ár hafið og gömul kynni við gamla vini endurnýjuð. Ég nefnilega er búin að vera svolítið að því að leita uppi gamla vini og boltinn rúllar áfram. Ég er þegar búin að fá nokkur bréf frá Ítalíu og er það bara frábært. Ég er enn í sambandi við Jamie frá Ástralíu og er það alveg frábært. Og núna síðast bættist frændinn minn hann Bjarnþór í hópinn! Ekkert smá heppin ha? Ja ég rakst eiginlega óvart á barnalandssíðu sonar hans. Og viti menn, frændi fundinn :D

Hann Bjarnþór var hjá okkur á sumrin þegar ég var lítil stelpa. Reynda köllum við frænkurnar hann alltaf Bahbó því Ebba frænka gat ekki sagt Bjarnþór, hehe. Þegar ég var lítil leit ég á hann svona eins og stóran bróðir, ja alla vegana er það svoleiðis í minningunni.

Bjarnþór ef þú lest þetta, þá er mjög gaman að heyra í þér aftur og ekkert smá sæt börn sem þú átt :D sé þig líka kannski á msn!

Já ég fór til Danmerkur að hitta sænskar vinkonur mínar í nóvember og svo í desember kom ein þeirra hingað í heimsókn til mín. Hún Anna var á Íslandi í um það bil viku. Hún var hér í Reykjavík í nokkra daga og svo fórum við vestur í dali. Hún var í Búðardal í nokkra daga og svo kom hún til mín að Geirmundarstöðum. Lentum í leiðindar veðri á leiðinni til reykjavíkur aftur, ojjjj það var meira ferðalagið.

Síðustu helgi eyddi ég með Eddu Lóu frænku...takk fyrir helgina frænka :D

Við gláptum á Dracula dead and lovin’ it og svo Monty Python. Átum yfir okkur af nammi og pasta. Fórum MJÖG seint að sofa, gátum ekki sofnað kjöftuðum svo mikið saman hehe. Það gerist þegar tvær eða fleiri frænkur hittas, þá verður kjaftað!

Jæja gott fólk, ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili...gangi ykkur allt í haginn, þangað til næst.

 

 



Lafði Birna

(ps. Edda Lóa þetta var fyrir þig hehe)


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 16:00:26 / birna

Vá ein löt

 Ok sælt veri fólkið,

ég veit ég er ekki sú allra besta í þessu enda ekki í netsambandi alla daga. Já ekkert að frétta hjá mér svo sem og veit ekki hvort ég nenni nokkuð að blogga í framtíðinni...en læt ykkur vita ef eitthvað sniðugt kemur upp á hjá mér og þá skal ég sko blogga feitt...

bless á meðan alla vegana


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 15:59:03 / birna

:D

Sælt veri fólkið,

Langt síðan síðast. Ég er komin heim á hrossunum og langt um meira en það. Kvennareiðin er liðin og ég komin aftur í upplýsingarnar eftir helgar frí með henni Mörtu vinkonu. Hún skellti sér vestur og hitti rugludallana í fjölskyldunni minni, aðalega kvennfólkið þó því að karlarnir máttu ekki fara með í kvennareið. Nema rétt svo til að gefa þyrstum konum að drekka og spila undir dansi fram á kvöld. Þetta var rosalega gaman og sérstaklega að hafa vinkonu með sér. Marta fékk hestinn minn hann Funa lánaðann og gekk henni bara svona þrusu vel að stjórna honum. Hann var alveg hreint glæsilegur hjá henni. Hún reyndi nú að láta hann ekki brokka með sig. Þeir sem þekkja til vita að hann er nú ekki beint þægilegasta hrossið til að láta brokka langar leiðir, hann er nefinlega ansi hasstur.

Svo lágum við í leti fram eftir degi á sunnudeginum. Horfðum á mynd og borðuðum nammi, mjög hressandi. :D

Svo styttist í það að mamma og pabbi skelli sér til útlandanna. Þau eru að fara til Skotlands í svona viku frí. Mér finnst það rosalega sniðugt hjá þeim. Þau hafa aldrei farið neitt svona líkt áður, alla vegana ekki saman.

 

Jæja ég ætla að hætta núna þar sem það er ekkert neitt rosalega merkilegt að frétta héðan :D

 

Birna

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 16:53:34 / birna

Alltaf að veiða...

Fyrirgefið, hef hreinlega ekki haft neitt til að skrifa um.

Í gær fórum við upp á Arnarvatnsheiði að veiða. Það er að segja ég, mamma, pabbi og Baldur “litli bróðir”. Við Baldur gáfum sem sagt pabba veiðiferð í afmælisgjöf og fórum við í gær. Það var rosalega gaman að koma þarna. Við fórum yfir á á Nissan, ég hélt í fyrstu að við kæmumst ekki yfir en það hafðist allt á endanum. Það var rosalega gaman að veiða þótt veiðin hafi ekki verið mikil. Við fengum aðeins tvo fiska, eða það vorum við mamma sem fengum fiska. Mömmu fiskur var 4punda hængur(urriði) og minn var 3 punda hrigna. Mjög fallegir fiskar.

Svo er mín lögð af stað með hrossin heim á leið í kvennareið. Það gengur bara ágætlega nema hvað við förum alltaf svo seint afstað því að ég er aldrei búin að vinna fyrr en klukkan 6 og þá á eftir að koma sér afstað. En við Jóhanna og Kolbrún tökum þetta bara hægt, stuttar vegalengdir á hverjum degi og stefnum að því að komast heim á fimmtudaginn, já sem sagt á morgun. Svo kemur Marta vestur ásamt Eddu Lóu frænku. Þetta verður rosaleg gaman hjá okkur. Amma fer hugsanlega líka á hesti. Það væri svo gaman að hafa hana með ríðandi :D

Ég er að fara til tannlæknis á morgun...ekki gaman. Ég er ekkert voðalega hrifin af þeim, sérstaklega ekki ef þeir eru mjög harðhenntir, en maður neiðist víst til þess að heimsækja þá af og til.  Ég er hætt í bili...

 

Birna út

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 16:27:03 / birna

heyja

Hæææææææææææææ,

 

Jæja þá er maður lifnaður við aftur :D Fór í tveggja daga frí, þann 1 og 2 ágúst....vá hvað það var gott. 1. ágúst varð pabbi 50 ára gamall. Við systkinin, það er að segja ég og Baldur, gáfum pabba veiðileyfi í Úlfsvatn upp á Arnarvatnsheiði. Hann var ekkert smá glaður með það. Já þann 1.ágúst vaknaði mín ekki fyrr en klukkan 1:30, já enginn smá svefn og ég þurfti líka ekkert smá á því að halda. Svo var bara skellt sér á hestbak og haft það náðugt. Í gær fór ég líka á hestbak með mömmu og pabba. Við fórum niður í fjöru að sulla þar, rosa gaman. Baldur fékkst ekki til að fara með en amma fór seinna um kvöldið með Eddu held ég. Það var upplifun að sjá ömmu á hestbaki, ekkert smá dugleg. Mér tókst að brenna í hitanum og sólinni í gær. Já ég ætti kannski að taka mér frí oftar, það kemur alltaf gott veður þegar það gerist :D nei segi svona.

Það er bara aftur farið að rigna þannig að ég veit ekki hvort ég fer á bak í kvöld.

Annars bara mest lítið að frétta héðan. Kvennareið eftir nokkra daga, hlakka mikið þangað til. Það verður bara að koma bollunum í þjálfun svo þær komist eitthvað áfram.

 

Ok, hætt þessu í bili

Gulur bolti!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2